Sunnudaginn 18. mars er guðsþjónusta kl.11.00. María Cederboprg leikur á þverflautu og Páll Eyjólfsson leikur á gítar. Þau eiga það sameiginlegt að vera foreldri fermingarbarna núna í vor. Í framhaldi af guðsþj. verður stuttur fundur þar sem lesinn verður fermingarlistinn fyrir vorið 2007 og farið yfir nokkra praktíska þætti fermingarathafnarinnar. Á sama tíma er sunnudagskólinn í safnaðarheimilinu.