Á miðvikudögum er opið hús fyrir eldri borgara safnaðarins frá kl.13.00-15.30. Það er tekið í spil, sungið, dansað, föndrað og spjallað saman. Fyrst og fremst góð samvera með góðu fólki. Umsjón hafa Vilborg Edda, og Margrét Snorradóttir.
Kyrrðarstund í hádeginu frá kl. 12.00-12.30. Fyrirbænir, hugleiðing og altarisganga. Súpa og brauð gegn vægu verði í safnaðarheimilinu á eftir.