Sunnudaginn 16. nóvember er guðsþjónusta kl. 11.00. Sunnudagurinn ber upp á dag íslenskrar tungu. Af því tilefni munum við í kirkjunni bjóða upp á ljóðamessu í samstarfi við Borgarbókarsafnið/Ársafni. Lesin verða átta til níu ljóð. Einsöngur: Jóhanna Halldórsdóttir flytur sálmasöng. Organisti er Krizstina K. Szklenár. Kirkjukórinn leiðir almennan safnaðarsöng. Fyrir altari þjónar sr. Þór Hauksson. Sunnnudagaskólinn á sama tima í safnaðarheimili kirkjunnar. Kirkjukaffi og meðlæti á eftir.
Sunnudagaskólinn á sama tíma í safnaðarheimili kirkjunnar! Viljum við hvetja unga sem aldna að koma og eiga góða og uppbyggjandi stund í kirkjunni sinni!