Kvenfélag Árbæjarsóknar
Nú er vetrastarfið að hefjast hjá okkur í Kvenfélagi Árbæjarsóknar. Vonumst eftir að eiga með ykkur ánægjulega samverustundir í vetur.
Starfið hefst þann 12. október kl.20.00
Slegið verður upp bresku teboði. Væri frábært ef konur kæmu með hatt og njóta kvöldstundar yfir tebolla og smábitum.
Ragnhildur Bragadóttir sagnfræðingur mun halda stuttan fyrirlestur um hagi kvenna á 18.0g 19. öld undir yfirskriftinni:
Sigurlaug ástkona auðmanns
Jk Degsign verður með kynningu og sölu á skartgripum.
Hlökkum til að sjá ykkur konur og takið vinkonur með.
kveðja,
Stjórnin
Dagskrá Kvenfélags Árbæjarsóknar 2015-2016
12. október- Enskt teboð
02. nóvember-Fyrirlestur um mataróþol
29. nóvember -Happdrætti líknarsjóðsins og kaffisala kvenfélagsins.
07. desember – Jólafundur; dagskrá með hefðbundnu sniði.
2016
08.febrúar – Aðalfundur
07. mars – Páskabingó
04. apríl – Fundur; dagskrá auglýst síðar.
02. maí – Skemmtifundur
[/fusion_builder_column][/fusion_builder_row][/fusion_builder_container]