Dagur aldraðra í Árbæjarkirkju
fimmtudaginn 5.maí er uppstigningadagur „Dagur aldraðra“. Um langt árabil hefur sá dagur verið tileinkaður eldri borgurum í söfnuðum landsins.
Hátíðarguðsþjónusta er kl.14.00. Eldri borgarar taka virkan þátt og verða með sýningu á handverki. Söngfuglar kór eldri borgara syngja fyrir kirkjugesti og Jón Guðmundsson flautuleikari leikur á þverflautu. Kirkjukórinn leiðir almennan safnaðarsöng. Prestar safnaðarins þjóna fyrir altari og prédika.
Eftir messu er kirkjugestum boðið til kaffihlaðborðs í safnðarheimili kirkjunnar, sem konur í Soroptimistaklúbbi Árbæjar standa að, af miklum myndarskap og ekki síður kærleika.[/fusion_builder_column][/fusion_builder_row][/fusion_builder_container]