Sr. Dagur Fannar Magnússon leiðir guðsþjónustuna þar sem við íhugum  og ræðum andlega blindu og hvernig við getum unnið að því að opna okkur augu okkar fyrir andlegum sannleika. Við munum skoða hvernig áföll, streita og líkamlegar blokkeringar geta hindrað okkur í andlegri þróun og tengslum við Guð og samfélag okkar.
 Stefán organisti,  leiðir söng ásamt félögum úr kirkjukór Árbæjarkirkju
Hlökkum til að sjá þig í kirkjunni þinni.