Skráning er hafin í barnastarf Árbæjarkirkju. Barnastarfið hefst þriðjudaginn 10. september 2024. Vegna framkvæmda við kirkjuna verður barnastarfið í sal Sjálfstæðisflokksins, Hraunbæ 102 b (við hliðina á Skalla) fram að áramótum. Tímasetningar eru eins og áður á þriðjudögum á eftirfarandi tíma:
STN (1 bekkur) þriðjudagur kl. 14
STN (2 og 3 bekkur) þriðjudagur kl. 15
TTT (4-7 bekkur) þriðjudagar kl. 16
Skráning fer fram á heimasíðu Árbæjarkirkju, smelltu hér til að skrá.

Dagskrá vetrarins er fjölbreytt að venju þar sem kristileg gildi, leikir og gleði fara saman. Börnin læra auk þess algengustu biblíusögur og gera hjálparstarfsverkefni.