Sunnudaginn 3. nóvember, er Allra heilagra messa í kirkjum landsins. Á þeim degi minnumst við látinna ástvina og heiðrum minningu þeirra sem hafa kvatt okkur síðastliðið ár. Mæðgurnar Margrét Helga Kristjánsdóttir og Arndís Alda syngja. sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari og prédikar. Krisztina K Szklenár organisti. Kirkjukórinn leiðir safnaðarsöng.
Sunnudagaskólinn kl.13.00 í umsjón Bryndísar, sr. Þórs, undirleikari Bjarmi.