Sunnudaginn 17.nóvember verður Guðsþjónusta á sínum stað kl. 11.00 í Árbæjarkirkju, Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts mun taka nokkur lög.

Sr. Dagur Fannar Magnússon þjónar fyrir altari og prédikar. Þemað þennan næst síðasta sunnudags kirkjuársins er opinberun Guðs í þokunni og hvernig við fetum leið okkar í gegnum hana á lífsins vegi. Kirkjukór Árbæjarkirkju leiðir almennan safnaðar söng undir stjórn Krisztinar K. Szklenár

Magnús Sævar verður í stuði með Guði og býður upp á kaffi í lok stundarinnar.

Síðan verðu sunnudagaskólinn á sínum stað kl.13.00