Sóknarnefnd Árbæjarsóknar auglýsir lausa stöðu organista/kórstjóra við Árbæjarkirkju. Um er að ræða starf frá 1. febrúar 2025 eða eftir nánara samkomulagi.
Í Árbæjarkirkju er fjölbreytt safnaðarstarf og messað hvern helgan dag. Við kirkjuna starfa tveir prestar, djákni, kirkjuverðir og ungt fólki í æskulýðsstarfi ásamt sóknarnefnd og sjálfboðaliðum. Organista er falin tónlistarstjórn safnaðarins og gegnir afar mikilvægu hlutverki í kirkjustarfinu. Barnakór hefur ekki verið starfræktur en stefnt er að því með nýjum organista/kórstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
Leiða og stýra tónlistarstarfi kirkjunnar. Leika undir í helgihaldi, athöfnum og kirkjulegu starfi á vegum kirkjunnar. Stýra og hafa umsjón með kór kirkjunnar og barnakór, æfa þá og stjórna. Undirleikur í samsöng eldri borgara, auk annara tilfallandi verkefna. Umsjón með hljóðfærum kirkjunnar og styðja við annað safnaðarstarf, t.d við fermingar, í samstarfi við sóknarprest, sóknarnefnd og starfsfólk kirkjunnar. Taka þátt í undirbúningi og framkvæmd menningarviðburða safnaðarins.
Menntunar- og hæfniskröfur
Kirkjutónlistarmenntun frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar eða öðru sambærilegu viðurkenndu námi. Reynsla af tónlistarflutningi við helgihald er æskilegt, góð reynsla af kórstjórn, listfengi, hugmyndaauðgi, vilji og geta til að vinna í teymisvinnu. Mikill áhugi á að byggja upp fjölbreytt og skemmtilegt tónlistar/menningarstarf í söfnuðinum.
Launakjör, réttindi og skyldur eru samkvæmt kjarasamningi Þjóðkirkjunnar og Félags íslenskra organista FÍO. Umsóknarfrestur er til 10. janúar nk.
Nánari upplýsingar gefur Konráð Gylfason formaður sóknarnefndar Árbæjarsóknar, s 787-2700 og á netfanginu arbaejarkirkja@arbaejarkirkja.is
Umsóknum skal skilað á vef Alfreds, www.alfred.is eða netfang Árbæjarkirkju.