Sunnudaginn 10. maí.
Vorhátið Árbæjarkirkju og Fylkismessa. Leikhópurin Perlan, kórskóli kirkjunnar syngur, fimleikastúlkur Fylkis sýna, við grillum og höfum stífluhlaup. Frábær fjölskylduskemmtun!
Sunnudaginn 17. maí er safnaðarferð Árbæjarkirkju-Farið verður í Viðey. Ferjan tekin 11.15. Hægt erð að fara á eigin vegum að ferjuhöfninni eða taka rútu frá kirkjunni. Hvort heldur sem er skráið ykkur á netfangið arbaejarkirkja@arbaejarkirja.is eða margret@arbaejarkirkja.is og látið vita hvorn kostinn þið kjósið. Við munum njóta staðarins vera með helgistund í Viðeyjarkirkju og grillum. Áætluð heimferð er 14.30/15.30. Börn komi í fylgd með fullorðinna.
Gospelkór Árbæjarkirkju ásamt hljómsveit heldur sína árlegu vortónleika miðvikudaginn 13/5 kl: 20:00.
Hljómsveitina skipa Ómar Guðjónsson á gítar, Jóhann Ásmundsson á bassa og Brynjólfur Snorrason á trommur. Stjórnandi kórsins er María Magnúsdóttir.
Miðaverð er kr. 1000 fyrir fullorðna og kr. 500 fyrir börn yngri en 12 ára. Léttar veitingar verða í boði kórsins eftir tónleikana.