Fermingarbörn úr Árbæjarkirkju ganga í hús í hverfinu mánudaginn 14. október milli kl. 17:00-19:00 með bauk frá Hjálparstarfi kirkjunnar sem er merktur, númeraður og lokaður með innsigli. Börnin gefa þannig af tíma sínum til að safna fé til verkefna Hjálparstarfs kirkjunnar í Afríku. Kærar þakkir fyrir að taka vel á móti þeim.