Bleik guðsþjónusta sunnudaginn 27. október kl.11.00.  Guðsþjónusta þar sem minnt er á árvekniátak Krabbameinsfélagsins á krabbameini í konum og tökum við í Árbæjarkirkju með þessum hætti þátt í bleikum október.  Lóa Björk Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur og ráðgjafi Krabbameinsfélagsins flytur hugvekju.  sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari. Kirkjukórinn leiðir safnaðarsöng undir stjórn organistans Stefáns H. Kristinssonar 

Kvenfélagskonur taka virkan þátt í guðsþjónustunni.  Kaffi og meðlæti á eftir.