Biblíusögur og söngur og mikil gleði. Brúðurnar Rebbi refur og Mýsla líta við. Umsjón Ingunn Björk Jónsdóttir djákni, Anna Sigga Helgadóttir söngkona og sr. Þór Hauksson. Bjarmi Hreinsson leikur á flygilinn.
Sunnudagaskólinn er fyrir allan aldur þar sem börn, foreldrar, afar og ömmur skemmta sér saman. Boðið upp á djús og kex í lokin. Verið öll hjartanlega velkomin. Þetta er síðasti sunnudagaskóli vetrarins.
Vegna framkvæmda við nýbyggingu kirkjunnar verður sunnudagaskólinn kl. 13:00 í vetur