Miðvikudaginn 5. september er fyrsta kyrrðar og bænastund vetrarins. Stundin hefst kl.12.00 með orgelleik. Fyrirbænir, söngur, kyrrð. Stundin stendur yfir í hálftíma. Á eftir er þeim boðið sem vilja að fá súpu og brauð í safnaðarheimili kirkjunnar gegn vægu gjaldi.
Sama dag kl.13.00 hefst samvera eldri borgara í söfnuðinum sem í daglegu tali kallast Opið hús. Stendur hún yfir til kl.16.00. Á þessum stundum er tekið í spil, föndrað, blöðin skoðuð, gestir koma í heimsókn með hljóðfæraslætti, kynningu eða fræðsluerindi.