Foreldramorgnar eru þriðjudaga kl. 10 – 12 í Safnaðarheimili Árbæjarkirkju og alla miðvikudaga kl. 9:30 – 11:30 í félagsmiðstöðinni Holtinu (gamla Mesthúsinu) í Norðlingaholti.
Notaleg upplifun fyrir foreldra og börn. Boðið upp á morgunverð.
Spennandi dagskrá, uppákomur og fyrirlestar einu sinni í mánuði. Það sem framundan er meðal annars:
4. febrúar. Svefnráðgjöf. Ingibjörg Leifsdóttir, svefnráðgjafi, verður með fræðslu og ráðgjöf um svefn barna.
11. mars. Sjálfstyrking. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir, fjallar um sjálfsstyrkingu eftir barnsburð.
1. apríl. Agavandamál. Lone Jensen, verkefnastjóri Þroska- og hegðunarstöðvar, fjallar um agavandamál barna
6. maí. Skyndihjálp barna