Það voru þreytt en sæl ungmenni í fermingarhópi Árbæjar sem komu heim úr Vatnaskógarferð miðviku og fimmtudagskvöld. Eftir viðburðríkan dag í sumarbúðum KFUM stendur eftir ummæli rútubílstjórans "þetta er prúðasti hópur fermingarbarna sem ég hef ekið í skóginn." Fræðslan gekk vel fyrir sig og frjálsi tíminn eins og bátar og íþróttahús vel nýtt. Endað var á kvöldvöku. Þegar upp er staðið stendur eftir góðar minningar nóvemberdaga í Vatnaskógi. Þegar börnin fóru heim á leið fengu þau í hendurnar blað um fyrirhugaða söfnun nk. mánudag kl.17.30. Söfnunin er á vegum Hjálparstarfs Kirkjunnar. Þessi söfnun hefur verið árviss viðburður undanfarin ár meðal fermingarbarna. Viljum við hvetja aðstandendur barnanna að kynna sér innihald bréfsins sem þau fengu í hendur og ræða við þau um efni þess. Vonumst við síðan til þess að sem flest barnanna geti tekið þátt í þessu mikilvæga starfi undirbúnings fermingar að vori.
sr. Þór Hauksson