Sunnudagaskólinn er í Árbæjarkirkju á sunnudögum kl. 13:00 þar sem ungir og aldnir eiga skemmtilega stund saman.
Brúðurnar Rebbi refur og vinkona hans Mýsla, eru tíðir gestir í Sunnudagaskólanum. Í Sunnudagaskólanum verður eins og undanfarin ár mikil gleði og söngur, biblíusögur og brúðuleikhús.
Annan sunnudag hvers mánaðar er fjölskyldumessa. Þar er brúað bilið á milli sunnudagaskóla og hefðbundinnar guðsþjónustu messuformið einfalt en um leið er reynt að höfða til barnanna.