Tólf sporin -Andlegt ferðalag
Tólf spora starf í Árbæjarkirkju 2025
Tólf spora starfið hefst að nýju 8. janúar 2025. Um er að ræða 16 vikna prógramm sem hefst í janúar og lýkur í maí 2025. Fyrst eru tveir kynningarfundir þar sem fólk hefur tækifæri til að kynna sér prógrammið. Það eru allir velkomnir á þessa opnu fundi og ekki þörf á að skrá sig fyrirfram. Fyrsti opni fundurinn verður miðvikudaginn 8. janúar kl. 17:30. Síðari opni fundurinn verður 15. janúar en 22. janúar verður hópunum lokað og reiknað með að þau sem mæta þá ætli að vera með fram á vorið. (Best er að mæta á báða kynningarfundina) Fundirnir verða síðan vikulega á miðvikudögum kl. 17:30-19:30. athugið breyttan fundartíma!
Tólf spora vinna hentar öllum sem í einlægni vilja vinna með tilfinningar sínar í þeim tilgangi að öðlast betri líðan og meiri lífsfyllingu með því að leita styrks í kristinni trú. Ekki er gengið út frá að fólk eigi við nein skilgreind vandamál að stríða, fíkn eða slíkt, heldur er um að ræða tækifæri til sjálfsskoðunar og almenna uppbyggingu til að geta betur tekist á við áskoranir lífsins.
Á vikulegum fundum er farið skipulega í gegnum sporin og unnið í litlum, lokuðum hópum út frá bókinni: Tólf sporin-Andlegt ferðalag. Þátttakendur lesa efnið heima, svara spurningum sem ákveðið hefur verði fyrir hvern fund og koma svo og deila niðurstöðum sínum með hópnum. Fundirnir verða á efri hæð kirkjunnar á miðvikudögum kl. 17:30-19:30. athugið breyttan fundartíma !
Starfið er þátttakendum að kostnaðarlausu, en nauðsynlegt er að kaupa vinnubókina. Hún er til sölu á kynningarfundunum en fæst líka í bókabúðum og í Kirkjuhúsinu.
Nánari upplýsingar um starfið gefur sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir netfang: petrina@arbaejarkirkja.is
Vinir í Bata er hópur kvenna og karla sem hafa tileinkað sér 12 sporin – Andlegt ferðalag. Hægt er að kynna sér samtökin á heimasíðu þeirra: www.viniribata.is